Formaður Samtaka arkitektastofa, Samark, segir svo virðast sem verkefnum arkitekta fari fækkandi og lítið sé að gera í íbúðaruppbyggingu, þrátt fyrir eftirspurn eftir húsnæði.„Við höfum áhyggjur en við erum ekki að panikka.“Þetta segir Halldór Eiríksson formaður samtakanna. Samark sendi út könnun til félagsmanna í maí um stöðu verkefna og horfur til framtíðar.Um 30 arkitektastofur heyra undir Samark og segir Halldór það vera bróðurpart þeirra stofa sem séu með arkitektaþjónustu á Íslandi. EINHVERJAR UPPSAGNIR HAFI ÁTT SÉR STAÐ Halldór segir um helming arkitektastofa telja stöðu verkefna verða óbreytta á næsta ári og ekki sjá fram á stóra niðursveiflu. Fleiri en færri af hinum helmingnum telji aftur á móti að verkefnum fari fækkandi.„Maður finnur að það er erfitt að koma húsnæðisverkefnu