Feðgarnir Friðrik Þórðarson og Leó Friðriksson hafa skellt sér í sund í 92 sundlaugum landsins og stefna á að dýfa sér í þær allar.„Þetta er skemmtilegt feðgaverkefni,“ segir Friðrik.Hann segir hugmyndina hafa kviknað eftir að feðgarnir fóru fyrir um tveimur árum að skrásetja sundlaugarnar sem þeir höfðu heimsótt á síðunni sundlaugar.com þar sem 127 sundlaugar landsins eru skráðar. SUNDLAUGIN Í FLÓKALUNDI ÁSKORUN „Þetta var fyrst svona að skrá sundlaugar sem við fórum í að gamni en svo þróaðist þetta út í það að okkur langaði bara að reyna að fara í allar,“ segir Friðrik.Haldi þeir áfram af sama krafti telur hann þá geta klárað sundlaugarnar á næsta ári. Flestar sundlaugarnar sem þeir eiga eftir eru í akstursfæri frá höfuðborgarsvæðinu.„Þetta er allt svona í akstursfæri fyrir sunnudagsb