Trump samþykkir frekari viðræður við Írana

Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í dag að hann hefði samþykkt að viðræður við Írana myndu hefjast á ný. Óvissa er þó um hvers eðlis þær viðræður verða.Engar viðræður um frið í Íran hafa átt sér stað frá því seinni hluta síðasta mánaðar þegar fulltrúar ríkjanna ræddu saman í Sviss eftir undirskrift viljayfirlýsingar milli ríkjanna. Trump kallaði Írana óþverra og klikkaða á leiðtogafundi NATO í vikunni og lýsti því jafnframt yfir að vopnahléinu væri lokið. Síðan þá hafa árásir átt sér stað á báða bóga, þó ekki í dag.Trump sagði í færslu á Truth Social í dag að Íranar hefðu beðið um að viðræður héldu áfram en setur þó orðið viðræður í gæsalappir. „Við höfum samþykkt það en Bandaríkin hafa sagt þeim það umbúðalaust að vopnahléinu sé LOKIÐ,“ sagði Trump jafnframt í færslunni. SEND
Trump samþykkir frekari viðræður við Írana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd