Þúsundir fögnuðu Salah og félögum

Egypska liðið komst í 16 liða úrslit sem er besti árangur Egypta á HM og tókst að sameina þjóðina í gleði í fyrsta sinn í langan tíma.„Þið færðuð egypsku þjóðinni mikla gleði. Við getum ekki þakkað ykkur nægilega vel fyrir. Okkur líður í raun eins og þið hafið unnið mótið og bikarinn,“ segir Laila Mohammed.Það var sjálf Argentína, með Lionel Messi í fararbroddi, sem sló Egypta út 3-2. Egypska knattspyrnusambandið hefur sagst óánægt með dómgæsluna í leiknum og mörgum þykir liðið hafa átt meira skilið úr leiknum á þriðjudag.„Þið fenguð okkur til að bera höfuðið hátt. Við komumst í 16-liða úrslit og áttum skilið að fara áfram í 8-liða,“ segir Salah Ibrahim.
Þúsundir fögnuðu Salah og félögum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd