Fréttamaðurinn fyrrverandi Gunnar Salvarsson furðar sig á því að ungt fólk í dag sé íhaldssamara en það var áður, kallar hann eftir því að hlustað verði meira á ungt fólk til að skilja hvers vegna það sæki á hægri væng stjórnmálanna. Á sínum tíma skrifaði Gunnar mikið um popptónlist í dagblöð og var með vinsæla útvarpsþætti. Hann segir í pistli á Vísi að þegar hann var að alast upp á Grímstaðaholtinu og í Vesturbænum hafi nánast öll ungmenni verið róttæk og viljað breyta heiminum.