Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem er gefið að sök að hafa reynt að bana öðrum manni í félagi við tvo aðra með því að stinga hann í rasskinn með óþekktu stunguvopni í bílakjallara á Höfðatorgi í mars.Annar meðsakborninga hans hafði þá þegar ekið á manninn á mikilli ferð og hinn barið hann ítrekað með óþekktu áhaldi.Maðurinn hefur verið í gæsluvarðhaldi frá 20. mars og er gert að sæta varðhaldi til 3. ágúst. LJÓST AÐ MAÐURINN HEFÐI LÁTIÐ LÍFIÐ ÁN LÆKNISMEÐFERÐAR Málsatvik eru reifuð í úrskurðinum og kemur þar fram að maðurinn hafi hlotið lífshættulega áverka af atlögunni. Hann hafi meðal annars hlotið lungnamar á báðum lungum, blóðþurrðarlost og brot á upphandleggsbeini auk stungusársins.Samkvæmt læknisvottorði var ljóst að hann hefði l