Ríkissaksóknari telur ekki efni til að óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna sýknudóms Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Því er einu umtalaðasta sakamáli samtímans lokið, rétt tæpum fjórum árum eftir að þeir Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverka.