Kona giftist fjórtán mönnum – Játaði fjölveri og fjársvik

Kona á fertugsaldri giftist fjórtán mönnum til þess að fjármagna spilafíkn sína í syndabælinu Las Vegas. Nýtti hún sér slaka giftingarlöggjöf fylkisins og svindlaði út úr þeim peninga.Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.Konan, hin 33 ára Jiaying Chen, hefur játað að hafa gifst fjórtán mönnum til þess að svindla út úr þeim peninga. Fékk hún frá þeim samanlagt 300 þúsund dollara eða tæplega 38 milljónir króna. Þeir fjármunir fóru hins vegar allir rakleiðis í fjárhættuspil.
Kona giftist fjórtán mönnum – Játaði fjölveri og fjársvik

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd