Spáð er allt að tuttugu og sex gráðum og bjartviðri á Austurlandi um helgina og landinn virðist streyma þangað í von um sólarglætu. Fáir flugmiðar eru óseldir frá Reykjavíkurflugvelli til Egilsstaða um helgina og tjaldsvæðin fyrir austan eru að fyllast.