Enn er langt í að einhver vendipunktur verði í stríðinu í Úkraínu þó að ýmislegt hafi gengið vel hjá Úkraínumönnum undanfarið. Þetta segir Oleksandr Syrsky, yfirmaður úkraínska hersins.Hernum hefur tekist að stöðva sókn Rússa um mestalla víglínuna, auk þess sem Úkraínumenn hafa gert fjölda drónaárása á rússneskt landsvæði, meðal annars á olíuhreinsistöðvar. Síðast í morgun voru gerðar árásir á hreinsistöðvar og hafnarmannvirki við Azov-haf í Suður-Rússlandi.Syrsky sagði í færslu á samfélagsmiðlum að á fyrri helmingi ársins hefði dregið úr sókn Rússa og árásum þeirra fækkað um helming. Sóknin væri nú álíka mikil á báða bóga. „Á sama tíma má ekki vanmeta óvininn. Við erum enn langt frá því að ná vendipunkti í stríðinu,“ sagði hann. AUKNAR ÁRÁSIR Á ÓBREYTTA BORGARA Samkvæmt greiningu AFP-f