Fær vikufrí frá HM stofunni til þess að þjálfa krakka á Spáni

„Ég verð í dag og svo ekki fyrr en í úrslitaleiknum. Það kemur þarna vika sem var löngu ákveðin áður en ég tók þetta að mér. Ég er að fara að þjálfa í knattspyrnuskóla á Spáni í viku, sem ég hef gert áður.“ segir Eiður Smári Guðjohnsen sem fær vikufrí frá HM stofunni eftir leik Spánverja og Belga.Eiður tekur þátt í þjálfunarbúðum fyrir börn á Spáni. Skólinn, Football Escapes, var settur á laggirnar af fyrrverandi fótboltastjörnum sem viða að sér leikmönnum úr ensku úrvalsdeildinni til að koma og þjálfa. Meðal stofnenda eru Rio Ferdinand og Bobby Zamora. „Þetta er kannski meira fyrir foreldrana gert, sem fara með börnin í frí og fá þá að henda þeim af sér í tvo tíma á dag eða svo.“Eiður Smári ræddi Heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Fram undan á Rás 2.
Fær vikufrí frá HM stofunni til þess að þjálfa krakka á Spáni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd