Kröfunni um auglýsingu starfsleyfis og fjögurra vikna umsagnatíma áður en leyfi er veitt eða því breytt hefur verið létt af öllum flokkum atvinnustarfsemi sem heilbrigðisnefnd gefur út starfsleyfi fyrir. Þannig hefur afgreiðslu starfsleyfa verið flýtt um allt að fjórar vikur.