Stjórnvöld hafa ekki enn átt í beinum viðræðum við Elkem á Íslandi vegna breyttrar skráningar fyrirtækisins. Greint var frá því í morgun að móðurfélagið hefði skilgreint Elkem Iceland sem aflagða starfsemi og tekið eignir til hliðar til sölu. Elkem, sem er skráð á markað í Noregi, segir í ársuppgjöri að tollar Evrópusambandsins hafi haft neikvæð áhrif á afkomu félagsins.Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir stjórnvöld fylgjast með málinu.„Það er auðvitað miður þegar svona mikilvæg grunnstarfsemi hjá okkur lendir svona niðri á milli, við náum ekki inn fyrir varnargirðingar sem Evrópusambandið reisir utan um sín ríki í þessu tollastríði sem ríkir í heiminum,“ segir Hanna Katrín.„Þarna erum við mögulega að sjá einhverja afleiðingu þess. Við höldum auðvitað áfram í fyrsta lagi mik