Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og einn stofnenda Áfram Ísland áttu í opinskáum umræðum um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu í þættinum Fram undan á Rás 2 í morgun. Sveinn Andri er hlynntur aðild en Sólveig Anna á móti. Til stóð að ræða það sem helst bæri í fréttum vikunnar en talið barst um leið að Evrópumálunum.