Framtíð Kaldvíkur mun ráðast af því hver „vöxtur og viðgangur“ stofnsins á árinu 2025 verður hjá fiskeldisfélaginu, að mati hlutabréfagreinanda, en ljóst sé að „engin flugeldasýning“ verður í rekstrinum á yfirstandandi ári. Verðmat á Kaldvík er lækkað um nærri fimmtung, en er samt enn nokkuð hærra en markaðsgengið.