Þeir sem fundust látnir í gróðureldunum voru flestir erlendir ferðamenn á flótta undan eldunum. Hækkandi hiti hefur skapað kjörskilyrði fyrir hraða útbreiðslu þeirra.Stærstu eldarnir loga við þorpið Los Gallardos, norðaustur af borginni Almería í Andalúsíu-héraði. Hundruð slökkviliðs- og hermanna hafa barist við eldana þar og hundruð íbúa hafa þurft að yfirgefa heimili sín.Antonio Sanz, almannavarnarráðherra Andalúsíuhéraðs, sagði að minnst 11 væru látnir, 19 væri saknað og átta slasaðir, þar af fjórir alvarlega. Eldurinn hefði breiðst afar hratt út á svæði þar sem mörg heimili væru í skóglendi. Þá hefur hvass vindur aukið útbreiðsluna enn frekar.Gróðureldarnir á Suður-Spáni stefna í að verða meðal þeirra mannskæðustu nokkru sinni í landinu. Samkvæmt nýjustu upplýsingum eru 11 látnir og 19