Meta, fyrirtækið sem á og rekur Facebook og Instagram samfélagsmiðlana, hefur ekki gætt að þeim mögulegu neikvæðu áhrifum sem hönnun þessara miðla getur haft á notendur þeirra.Þetta kemur fram í frumniðurstöðum rannsóknar sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur látið gera á Facebook og Instagram, og birtar voru í morgun.Í þessum niðurstöðum kemur fram að hönnun Facebook og Instagram, meðal annars að beina klæðskerasniðnu efni að notendum, sjálfvirk spilun (autoplay) og sífellt skroll leiði til óheilbrigðrar notkunar á þessum miðlum og netfíknar.Fram kemur einnig að Meta hafi ekki tekið tillit til upplýsinga sem liggja fyrir um notkun barna og unglinga á þessum miðlum, og hvernig hönnun þeirra geti leitt til óhóflegrar notkunar.Rannsóknin er gerð á grundvelli DSA (Digital Services Act)