Ístex hf. hefur tilkynnt bændum sem lagt hafa inn ull hjá fyrirtækinu að fyrirtækið sé ekki fært um að inna af hendi peningagreiðslur fyrir ullina að sinni, en til að tryggja að bændur fái verðmæti fyrir sína afurð sé þeim gefinn kostur á að breyta kröfum sínum að hluta eða öllu leyti í hlutafé í Ístex. Þá er bændum einnig gefinn kostur á að taka út ákveðnar vörur upp í skuldir, svo sem ullarteppi og ullarsængur.