Skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt að staðartíma ók flutningabíll að vörumóttöku British Museum í London með Bayeux-refillinn innanborðs. Mikil leynd hvíldi yfir flutningunum. Lögreglan fylgdi bílnum frá leynilegum brottfararstað í Frakklandi.Útvalinn hópur gesta tók á móti flutningabílnum við British Museum, þeirra á meðal safnstjórinn og sendiherra Frakklands í Bretlandi.Út úr bílnum kom rammgerður kassi sem geymir refilinn. Vel var fylgst með hita- og rakastigi í kassanum til að reyna að tryggja að hann skemmdist ekki við flutninga. Forverðir beggja vegna Ermarsunds höfðu áhyggjur af því að flutningur verksins gæti valdið því skemmdum enda er það afar viðkvæmt.Þá hékk kassinn inni í öðrum kassa í gormum. Það átti að verja verkið fyrir hristingi við flutningana.Refillinn, sem er nærri sjöt