Akureyrarbær er langt frá því að vera eina sjávarþorpið sem glímir við freka hettumáva, en einhverjum þykir þeir hafa fært sig upp á skaftið undanfarið.Bæjarbúar hafa sent fréttastofu ábendingar um að mávarnir fari ofan í ruslafötur, þar sem þeir komast í æti, og skilji svo pakkningar og rusl eftir á víð og dreif.Bærinn segir ekki á plani að breyta ruslafötunum.Að miklu leyti er þetta i höndum gesta og gengandi - að mávarnir séu ekki að gangi ekki á lagið og komist ekki í matinn okkar. Hvorki á að skilja matinn sinn eftir á borðinu, né kasta afgöngum í mávana.Og aðalatriðið, samkvæmt flestum þeim leiðbeiningum sem fréttastofa hefur fundið, er að henda matarleifum í lokaðar tunnur. Fyrir hugrakka er svo beint augnsamband sagt hafa fælandi áhrif á fuglana.