Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, segir að þrýst hafi verið á hana að tjá sig um fána. Er það gert í kjölfar skemmdarverks við Grafarvogskirkju þar sem íslensku fánalitirnir voru málaðir yfir hinseginfánann. Málið hefur vakið mikla athygli og umræður. Er málið nú til rannsóknar hjá lögreglu sem mögulegur hatursglæpur. Búið er að hreinsa stéttina og stendur til að mála hinseginfánann aftur á næstu dögum. Þá hafa samtökin Ísland Þvert á flokka boðað til samstöðufundar á sunnudaginn.