Hviður að 35 m/s á Norðvesturlandi

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við hvössum og byljóttum vindi á landinu norðvestanverðu frá því seint í kvöld og fram yfir miðjan dag á morgun. Hviður geta farið í 30-35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi til Eyjafjarðar.Þá er varað við talsverðu sandfoki á morgun á hálendinu norðan Vatnajökuls í ábendingu veðurfræðings til vegfarenda.RÚV / Bjarni Rúnarsson
Hviður að 35 m/s á Norðvesturlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd