Unglingsstúlka lést í fagnaðarlátum eftir leikinn

Frönsk unglingsstúlka lést í fagnaðarlátum í kjölfar sigurs Frakklands á Marokkó í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu í gær.Viðbragðsaðilar segja að stúlkan, sem var 17 ára gömul, hafi fallið af palli flutningabíls í Aulnoye-Aymeries nærri borginni Baubeauge. Stúlkan lenti undir flutningabílnum og var úrskurðuð látin á vettvangi. Bílstjóri flutningabílsins var handtekinn.Þúsundir lögreglumanna um allt Frakkland fylgdust með fagnaðarlátum eftir leikinn við Marokkó í gær, sem endaði með 2-0 sigri Frakka.Frá fagnaðarlátum í Frakklandi í gærkvöld.EPA / Mohammed Badra
Unglingsstúlka lést í fagnaðarlátum eftir leikinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd