Aðeins 165 umsóknir um alþjóðlega vernd bárust frá ríkisborgurum annarra landa en Úkraínu fyrstu fimm mánuði ársins. Úkraínumenn voru ríflega 70% allra umsækjenda. Þetta kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar. Þar segir einnig að 90 umsóknum um alþjóðlega vernd var synjað frá ársbyrjun út maí en 56 dvalarleyfi veitt. Þar fyrir utan fá úkraínskir ríkisborgarar mannúðarleyfi vegna fjöldaflótta. Samkvæmt gögnunum bárust...