Breski öfgahægri maðurinn Nigel Farage, formaður Reform UK, ætlaði sér að „skora hin ráðandi öfl“ á hólm þegar hann sagði af sér þingmennsku til þess að bjóða sig strax aftur fram. En nú lítur út fyrir að hann takist aðeins á við ruslatunnu og líkurnar á að ruslafatan vinni aukast sífellt.Farage sagði af sér þingmennsku fyrir tveimur dögum síðan. Ástæðan var sú að eftirlitsnefnd þingsins þjarmar að honum vegna peningagjafar frá rafmyntamógúli. Líkur eru á að nefndin kalli eftir aukakosningu í kjördæmi Farage, Clacton-On-Sea, eins og lög segja til um gerist þingmenn brotlegir.