Þetta segir Alison Matthews, lögfræðingur hjá Samtökunum Transparency International, sem tilkynntu í dag að þau hefðu aðstoðað við að koma skaðabótakröfum 1.034 Namibíumanna til Héraðssaksóknara. Kröfunum er beint að Samherja og starfsmönnum fyrirtækisins, vegna meintra mútubrota í Namibíu, sem bakað hafi fólki og samfélagi í landinu gríðarlegt tjón.“Þetta er alls ekki bara almannatengslaherferð. Við erum mjög vongóð um að kröfurnar verði samþykktar á Íslandi. Á hinn bóginn erum við augljóslega meðvituð um að það er alls öruggt að það náist,” segir Matthews um þær fyrirætlanir að gera skaðabótakröfurnar hluta að sakamáli á hendur Samherja eða fulltrúum fyrirtækisins. ENN EKKERT VITAÐ UM MÁLALYKTIR Slíkt sakamál hefur ekki verið höfðað, enda enginn verið ákærður í málinu sem verið hefur t