Það varð skyndilega uppi fótur og fit í blaðamannamiðstöð leiðtogafundar NATO í Ankara á miðvikudagsmorgun, þegar Donald Trump settist niður með Mark Rutte framkvæmdastjóra NATO og tók nokkrar spurningar frá fjölmiðlum.Streymið frá þessum viðburði var af einhverjum ástæðum ekki á þeirri sjónvarpsrás NATO sem flestir voru að horfa á - og skyndilega stukku allir til og opnuðu vefsíðu breska miðilsins Sky News; það er ekki ljóst hvaðan sá miðill fékk streymið, en þessum viðburði var allavega streymt í gegnum vefsíðu Hvíta hússins.Og eins og venjulega, þá talaði Trump í fyrirsögnum eins og það er stundum kallað - fyrirsögnum sem rötuðu beint á helstu fréttaveitur heims, í rauðu letri, sem gefur til kynna fréttagildi þeirra.Tökum AFP sem dæmi (Agence France Presse, sem birtir fréttir á nokkrum