Það má búast við golu eða kalda og skúrum nú í morgunsárið en dregur úr vætu þegar líður á daginn, en bætir í vind norðvestantil í kvöld. Hiti að 18 stigum í dag, mildast á Austurlandi.Á morgun beinir öflug hæð yfir Skotlandi til okkar hlýrri sunnanátt og á Norðaustur- og Austurlandi verður léttskýjað og mjög hlýtt, en suðvestan- og vestantil rigning og 10 til 15 stig. Það verður allhvasst á landinu norðvestanverðu og raunar getur vindurinn verið varasamur ökumönnum í þeim landshluta fram á sunnudag.Þá má áfram búast við þurru veðri og hlýindum á Norður- og Norðausturlandi, en bætir í vind í flestum landshlutum og bætir í úrkomu á Vesturlandi, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Lægðardrag skammt norðaustur af landinu beinir til okkar suðvestan- og vestanátt,