Lögregluþjónn ur umferðardeild á mótórhjóli.Ruv.is / Anton BrinkLögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann í gærkvöld sem var að horfa á fótboltaleik á HM í símanum í miðjum akstri.Í dagbók lögreglu segir að grunur hafi vaknað um að ökumaðurinn væri undir áhrifum áfengis og auk þess sviptur ökuréttindum. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð.Á milli klukkan 17 í gær og 5 í morgun rötuðu 73 mál á borð lögreglu. Einn var vistaður í fangageymslu í morgunsárið.