Fuglainflúensa greinist í staðbundnum fugli í fyrsta sinn í Ástralíu

Stjórnvöld í Ástralíu staðfestu í dag að banvænt afbrigði fuglainflúensu, H5N1, hefði greinst í staðbundnum sjófugli í fyrsta sinn. Þangað til í síðasta mánuði hafði H5N1-afbrigði fuglainflúensu ekki greinst í Eyjaálfu. Hingað til hefur það aðeins greinst í farfuglum.Vísindamenn við áströlsku vísindamiðstöðina staðfestu að fuglainflúensan hefði greinst í boðaþernu sem fannst í hafnarbænum Robe í suðurhluta landsins.Fjöldi tilfella í landinu er því kominn upp í tólf.Julie Collins, landbúnaðarráðherra Ástralíu, segir þróunina áhyggjuefni en þó ekki óvænta. Hún segir að engar vísbendingar séu um fjöldadauða meðal fugla í landinu né að veiran hafi náð inn í alifuglabú í landinu.Collins segir vísindamenn nú reyna að komast að því hvernig ástralski fuglinn smitaðist. Vitað sé að útbreiðslusvæði
Fuglainflúensa greinist í staðbundnum fugli í fyrsta sinn í Ástralíu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd