Leitaði til lögreglu eftir innbrot þriggja greifingja

Lögreglan í Þrændalögum í Noregi fékk óvenjulegt símtal skömmu eftir miðnætti að norskum tíma í nótt. Örvæntingarfullur húseigandi í Þrándheimi óskaði aðstoðar eftir að þrír greifingjar gerðu sig heimankomna. Þeir höfðu komist inn í húsið í gegnum kattalúgu.Í frétt VG segir að ringulreið hafi ríkt meðal ferfættra íbúa hússins eftir heimsókn greifingjanna. Einn köttur flúði upp á eldhúsbekkinn en annar þaut út sömu leið og greifingjarnir komu inn, í gegnum kattalúguna.Húsráðandi leitaði skjóls í svefnherbergi. Það gerði hann vegna þess að einn greifinginn virtist ógnandi. Þetta segir Stian Martinssen Aalberg, aðgerðarstjóri hjá lögreglunni í Þrændalögum.Lögreglan hafði ekki tök á að senda mannskap á staðinn. Starfsmenn sérstakrar nefndar sem hefur eftirlit með dýralífi, viltnemnda upp á nor
Leitaði til lögreglu eftir innbrot þriggja greifingja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd