Tólf látnir í gróðureldum í suðurhluta Spánar

Tólf eru látnir í gróðureldum sem hafa geisað í Andalúsíu á Spáni í dag. Í það minnsta sex til viðbótar eru særðir.Í yfirlýsingu yfirvalda í héraðinu segir að dauðsföllin hafi orðið í smáþorpinu Bedar. Um 150 slökkviliðsmenn hafa barist við eldana. Ekki hefur verið greint frá eldsupptökum en mikill hiti hefur verið í suðurhluta Spánar síðustu daga.Vitni segja að eldurinn gæti hafa blossað upp eftir að rafmagnslína féll til jarðar. Eldurinn breiddi hratt úr sér í þurrum gróðrinum og náði í nærliggjandi skóglendi.Vegum var lokað og íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín eftir að eldurinn breiddi úr sér. Sérstakt neyðarteymi spænska hersins hefur verið kallað út til þess að aðstoða slökkviliðsmenn við slökkvistörfin.
Tólf látnir í gróðureldum í suðurhluta Spánar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd