Burnham nær öruggur sem næsti forsætisráðherra

Andy Burnham, þingmaður Verkamannaflokksins, hefur svo gott sem tryggt sig í sessi sem næsti forsætisráðherra Bretlands. Af 403 þingmönnum Verkamannaflokksins hafa 322 nú þegar tilnefnt hann sem arftaka Keir Starmer í embætti leiðtoga flokksins og þar með embætti forsætisráðherra. Enginn annar hefur gefið kost á sér.Styr hafði lengi staðið um Starmer en hann tilkynnti afsögn sína þann 22. júní. Síðasti naglinn í kistu hans var negldur þegar Burnham var kjörinn þingmaður Verkamannaflokksins í aukakosningum í Makerfield þremur dögum fyrr.Frestur til þess að tilnefna nýjan leiðtoga rennur út þann 16. júlí. Verði engin mótframboð verður Burnham settur inn sem leiðtogi flokksins og tilvonandi forsætisráðherra á sérstakri flokksráðstefnu daginn eftir.Eftir fund með Karli Bretakóngi tæki hann svo
Burnham nær öruggur sem næsti forsætisráðherra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd