Einn af dælubílum slökkvilliðsins á höfuðborgarsvæðinu.RÚV / Ragnar VisageSlökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan níu í kvöld vegna elds í Hlíðunum í Reykjavík. Einn dælubíll var sendur á vettvang að sögn varðstjóra sem segir að ekki hafi verið um mikinn eld að ræða. Hann hafi verið slökktur með hraði og þá tók við reyklosun.Þá var einn dælubíll sendur að heimahúsi á Sogavegi í kvöld vegna heitavatnsleka. Útlit er fyrir að tjónið sé minniháttar.