Ísland og norðurslóðir eru nú nokkuð í umræðunni í tengslum við leiðtogafund NATÓ sem fram fór í Tyrklandi. Sú áhersla hefur aukist verulega og mun aukast á næstunni að sögn Alberts Jónssonar, sérfræðings í alþjóðastjórnmálum, nú þegar hafísinn hörfar og aðgengi eykst.