Bráðavakt allan sólarhringinn á framkvæmdasvæðinu í Vaðölduveri

Ríflega tvö hundruð manns eru í vinnu á framkvæmdasvæði Landsvirkjunar í Vaðölduveri, fyrir ofan Búrfellsvirkjun. Vaðölduver er fyrsta vindmylluver landsins.Framkvæmdasvæðið er 17 ferkílómetrar og mörg handtök sem þarf við að reisa hverja vindmyllu. Búið er að reisa fjórar vindmyllur, af 28, og til stendur að setja fyrstu vindmylluna í gang í lok ágúst. Ráðgert er að vindmyllurnar 28 verði komnar í fulla framleiðslu fyrir lok 2027. LANDSVIRKJUN MEÐ SAMNING VIÐ HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURLANDS Einar Tryggvason, sjúkraflutningamaður, sinnir bráðavakt á vinnusvæðinu. Hann vinnur á vöktum en Landsvirkjun gerði samning við Heilbrigðisstofnun Suðurlands um mönnun á svæðinu.Hann segir engin alvarleg meiðsli hafa komið upp. „Þetta eru bara minniháttar hrufl og skurðir og þess háttar en ekkert alva
Bráðavakt allan sólarhringinn á framkvæmdasvæðinu í Vaðölduveri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd