Allt það helsta: Frakkland — Marokkó

Frakkar fara svo auðveldlega í undanúrslit eftir 2-0 sigur. Mbappé klúðraði vítaspyrnu í fyrri hálfleik og markalaust var í hálfleik. Mbappé bætti svo upp fyrir það með glæsilegri afgreiðslu í fjærhornið á 60. mínútu.Þá neyddust Marokkómenn til að sækja en Dembéle refsaði fyrir það með marki. Það kom í raun samstundis þegar liðið færði sig upp völlinn. Hann geystist upp miðjan völlinn og kláraði vel í nærhornið.Eftir það var eftirleikurinn auðveldur og Deschamps gat leyft sér að hvíla Mbappe, meira að segja.Liðin voru nokkuð jafnt með boltann, Frakkar voru 48,1% með hann gegn 51,9% hjá Marokkó. Atlasljónin gerðu hins vegar ekkert með boltann.Frakkar voru með vænt mörk upp á 3,05 en Marokkó 0,14. Frakkar áttu 22 skot gegn 5 og voru með 25 snertingar inni í teig gegn átta hjá Marokkó.
Allt það helsta: Frakkland — Marokkó

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd