Eigendur hundsins sem fannst dauður við Langjökul í byrjun mánaðar eru fundnir.Þetta kemur fram í Facebook-færslu Dýrfinnu, samtaka sjálfboðaliða sem aðstoða við að koma týndum dýrum heim.Þar segir að eigendur hundsins hafi gefið sig fram. Hann hafi verið týndur í tæp tíu ár og að þeir séu þakklátir fyrir að hafa fengið svör eftir langa bið og mikla óvissu.Hundurinn fannst dauður á fáförnum stað, vestanverðum Langjökli. Samtökin Dýrfinna auglýstu eftir eiganda hundsins í færslu á Facebook en vegna mikils niðurbrots var erfitt að segja til um tegund hans né lit á feldi.Líklegt þykir að hundurinn hafi týnst eða dottið ofan í sprungu þegar síðast sást til hans.