Alls bárust 449 svör, þar af 432 gild og 17 auð eða ógild. Niðurstöður sýna að 71,3% svarenda vilja ekki sameiningu Flóahrepps við annað sveitarfélag eða sveitarfélög en 28,7% voru því fylgjandi. Í könnuninni höfðu svarendur einnig möguleika á að svara hvaða sveitarfélögum eða svæðum þeir vildu helst snúa sér til varðandi sameiningu ef til sameiningar kæmi og sýna niðurstöður að flestir svarendur myndu velja sameiningu við Skeiða- og Gnúpverjahrepp ef til skoðunar væri að sameina sveitarfélagið.„Niðurstöðurnar sýna skýra afstöðu íbúa Flóahrepps varðandi sameiningarmál eins og staðan er í dag. Ljóst er að mikill meirihluti íbúa vill að Flóahreppur haldi áfram í sjálfstæði sitt sem sveitarfélag. Svona skýr niðurstaða sýnir okkur einnig að íbúar viraðst vera sáttir með sitt sveitarfélag og þa