Þrjátíu geimfarar og fleiri vísindamenn frá Bandarísku geimferðastofnuninni NASA verða við rannsóknir á Snæfellsnesi þegar almyrkvi verður á sólu í ágúst.Ragnhildur Sigurðardóttir, þjóðgarðsvörður á Snæfellsnesi, segir samstarf garðsins við NASA hafa gengið vel.„Þeir hafa áhuga á almyrkva á sólu og koma hingað með sinn besta búnað. Þeir koma hingað með þrjátíu geimfara, ég vissi ekki að það væru til svo margir geimfarar, og þeir ætla að vera hér. Sama hvernig veðrið verður þá ætla þeir að ná í sýni sem þeir þurfa fyrir sínar umfangsmiklu rannsóknir.“Almyrkvinn stendur yfir í rúmar tvær mínútur en búnaður til rannsókna verður áfram í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Ragnhildur vonast til þess að samvinna milli Þjóðgarðsins og NASA haldi áfram eftir að almyrkvinn er yfirstaðinn.