Lirfa frá helvíti ræðst á tré og fólk

Svokallaðar lirfur frá helvíti, sem leggjast á eikartré, hafa gert bæði trjám og fólki lífið leitt víða í Danmörku. Lirfan sást í Kaupmannahöfn í fyrsta sinn í gær og yfirvöld ætla í hart við pláguna.Lirfurnar leggjast saman í hópnum á eikartrén, fá næringu úr því og út frá þeim koma svo fíngerð hár sem setjast í öndunarfæri fólks og valda óþægindum - hafa jafnvel stungist í húð fólks og valdið útbrotum og kláða. Lirfan sást fyrst í Óðinsvéum og hefur reyndar verið þar áður.Yfirmaður umhverfis- og loftslagseftirlits Kaupmannahafnar boðar herta baráttu gegn vágestinum.
Lirfa frá helvíti ræðst á tré og fólk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd