Enn dregur á líkum á forsenduákvæði kjarasamninga haldi. Fjármálaráðherra er ekki bjartsýnn. Vonir um að olíuverð í heiminum lækki eru litlar því ófriður við Hormússund hefur blossað upp á ný. Hann gefur lítið fyrir gagnrýni atvinnulífsins á umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins um eldsneytismarkaðinn.Ef ársverðbólga mælist meiri en 4,7 prósent í lok ágúst verður heimilt að segja upp kjarasamningum á almennum vinnumarkaði ef ekki tekst að semja um viðbrögð við forsendubresti.Auknar líkur eru á að forsendur kjarasamninga bresti í haust að mati fjármálaráðherra. Áframhald átaka við Persaflóa hafi neikvæð áhrif á þróun efnahagsmála. VAR EKKI BJARTSÝNN OG ER MINNA BJARTSÝNN NÚNA Í lok febrúar þegar Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran og Íranar lokuðu Hormússundi snarhækkaði olíuverð. Það f