Sérfræðingar segja erfiðleika í samskiptum Bandaríkjanna og Evrópu hafa sett mark sitt á leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Ankara. Ísland eigi í framtíðinni ýmist eftir að reiða sig í auknum mæli á varnarsamstarf við Bandaríkin eða Evrópu.„Það þykir helst fréttnæmt af fundinum að það hafi ríkt samstaða á honum. Það er nokkuð sérstakt að það þurfi að taka það fram á þessum óvissutímum nú þegar ríkjum Evrópu stendur meiri ógn af Rússlandi heldur en þeim hefur gert svo áratugum skiptir,“ segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði.Baldur segir tvennt skipta mestu máli af leiðtogafundinum í Ankara.„Það er annars vegar það að fundurinn ítrekar yfirlýsingar um stóraukin útgjöld til varnarmála og útfærir þau að ákveðnu marki, í hverju eigi að verja þessum fjármunum, og hins vegar e