Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur bætt við sig tugþúsendum fylgjendum á samfélagsmiðlum síðustu daga. Hún er á heimleið frá Tyrklandi eftir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem fór fram í Ankara í vikunni.Kristrún virðist hafa vakið talsverða lukku meðal Tyrkja síðustu daga. Hún bætir ört við sig tyrkneskum fylgjendum á samfélagsmiðlinum Instagram og fjöldi netverja hefur birt myndskeið frá heimsókn hennar til Ankara.Forsætisráðherra Íslands vakti nokkra athygli í Tyrklandi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins. Hún hefur fengið þúsundir nýrra erlendra fylgjenda á samfélagsmiðlum í vikunni sem margir hverjir lofa hana í hástert. „ÞÚ ERT EINS OG HEIDI ÚR ÖLPUNUM“ Margir Tyrkir lýsa hrifningu sinni á íslenska forsætisráðherranum í athugasemdum og lofsama hana fyrir reisn,