Rækjuskeljavinnsla er hafin á ný í verksmiðju Primex á Siglufirði. Stórbruni varð í verksmiðjunni í október í fyrra og tjónið metið á rúman einn koma þrjá milljarða króna.Vélarnar hjá Primex voru ræstar á ný á dögunum eftir um 8 mánaða vinnslustopp.„Það á nú eftir að taka smá tíma að keyra upp verksmiðjuna en þetta er bara mikill gleðidagur og við erum bara fegin að geta byrjað“ segir Vigfús Fannar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Primex.Þeir tuttugu starfsmenn sem þar vinna héldu allir vinnunni þó að vinnsla væri stopp - en geta nú loksins snúið sér aftur að sínum hefðbundnu störfum. Vinnustaðurinn er með þeim stærri á Tröllaskaga.Hjá Primex er hráefnið kítósan unnið úr rækjuskel, til notkunar í til dæmis lækningavörur. Þau framleiða einnig snyrtivörur og lækningavörur undir merkinu ChitoCare.