Jarðböðin í Mývatnssveit voru opnuð í dag, nokkrum dögum á eftir áætlun. Framkvæmdir hafa staðið yfir í nokkur ár og hefur ýmislegt komið upp á, að sögn framkvæmdastjóra. Mikil ánægja er þó með hvernig framkvæmdirnar tókust til.Jarðböðin hafa verið mikið aðdráttarafl í Mývatnssveit og var þeim mikið keppikefli að opna á meðan ferðamannastraumurinn er sem mestur. Þau eru langstærsti atvinnurekandinn á þessum slóðum með um 70 starfsmenn þegar mest lætur.Í samtali við fréttastofu í upphafi júní sagði Guðmundur Birgisson framkvæmdastjóri að þeir stefndu á að opna 30. júní. Það tókst ekki alveg en 9. júlí varð að duga.Jarðböðin lögðu mikið upp úr sjálfbærni í byggingarfasanum þar sem jarðvegur og grjót úr nágrenninu voru nýtt í þakkanta hússins og gufubaðið á staðnum er kynnt með jarðhitanum á