Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz, segir her landsins reiðubúinn að gera árásir á Íran á ný. Ísrael hóf árásir á Íran með Bandaríkjunum 28. febrúar. Úti er um tilraunir til samninga um vopnahlé í bili, hið minnsta, og síðustu tvo sólarhringa hefur Bandaríkjaher gert árásir á Íran. Meðal skotmarka Bandaríkjanna í dag var lestarbrú milli höfuðborgarinnar Tehran og borgarinnar Mashhad. Æðstiklerkur Írans, sem herir Bandaríkjanna og Írans réðu af dögum, var í dag borinn til grafar í Mashhad. Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz.EPA / ABIR SULTAN