Tilraunum til netbrota fjölgar en brotum ekki

Fleiri tilkynningar um netbrot rata á borð lögreglu en undanfarin ár og færri virðast falla fyrir tilraunum netsvikara. Lögregla telur þróunina jákvæða. Almenningur sé sífellt betur vakandi fyrir tilraunum til netbrota og láti vita af þeim í auknum mæli.Í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að á fyrri helmingi ársins 2026 hafi lögreglu borist 1.745 ábendingar um tilraunir til netbrota.Til samanburðar bárust 522 ábendingar allt árið 2025 og 153 árið 2024.Fyrstu sex mánuði ársins var tilkynnt um 91 netbrot. Þannig er útlit fyrir að heildarfjöldi brota verði svipaður og á síðasta ári, þrátt fyrir að ábendingum hafi fjölgað margfalt.Í tilkynningu lögreglu segir að aukin fræðsla til almennings og meiri árvekni sé líklega að skila sér með því að draga úr árangri brotamanna og kom
Tilraunum til netbrota fjölgar en brotum ekki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd