Jólasveinar í sumarhita í Danmörku

Þrátt fyrir að enn sé hásumar og nokkrir mánuðir í jólin er orðið jólalegt í Álaborg í Danmörku. Þar eru tugir jólasveina samankomnir á árlegu heimsþingi. Viðburðurinn hefur verið haldinn í 70 ár. Fyrstu árin var tilgangurinn með þinginu að skemmta börnum. Síðar hefur hann orðið ómissandi samkoma fyrir jólasveina víðs vegar að. Þetta eru jólasveinar sem eru önnum kafnir í desember við að skemmta fólki í verslunum og á jólaböllum. Í Álaborg keppa þeir í ýmsum þrautum eins og piparkökuáti og gjafapökkun.Sumir þeirra koma langt að, svo sem frá Ástralíu, Hong Kong, Kanada, Bandaríkjunum og Japan. Flestir eru þó frá Norðurlöndunum.AP / James Brooks
Jólasveinar í sumarhita í Danmörku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd