Starfsmenn Volkswagen mótmæla niðurskurði

Fjöldi starfsmanna Volkswagen í Þýskalandi kom saman til mótmæla víðs vegar um landið í dag. Þeir óttast um afkomu sína láti fyrirtækið verða af endurskipulagningu sem felur í sér að tugum þúsunda verði sagt upp.Rekstur Volkswagen hefur orðið þyngri í róðri síðustu ár. Helstu ástæðurnar eru samkeppni við bílaframleiðslu í Kína, tollar í Bandaríkjunum og kostnaður við framleiðslu rafbíla.Þegar hefur verið tilkynnt að fækka eigi störfum um 50.000. Þó hafa borist fregnir af að til skoðunar sé að fækka um 100.000, auk þess að loka fjórum verksmiðjum í Þýskalandi.Fyrir tveimur árum var samið um að loka ekki verksmiðjum fyrr en í lok áratugarins. Síðan hafa rekstrarhorfur versnað.Starfsmenn Volkswagen eru yfir 600.000. Róðurinn hefur einnig þyngst hjá öðrum bílaframleiðendum í Þýskalandi, svo se
Starfsmenn Volkswagen mótmæla niðurskurði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd